words per minute
2
Typist_2492503
00:00
Speed
Hvernig er hægt að skila gögnum?
Mælt er með því að gögnum sé skilað með rafrænum hætti á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs: www.faedingarorlof.is nema læknisvottorðum en þeim verður að skila í frumriti í bréfpósti. Þá er hægt að skila gögnum með bréfpósti á Fæðingarorlofssjóð Strandgötu 1, 530 Hvammstanga eða á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar.
Hvernig má nálgast frekari upplýsingar?
Á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs: www.faedingarorlof.is má finna ýmsan fróðleik um réttindi foreldra til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks. Vanti þig frekari upplýsingar, eitthvað er óljóst eða ef þú þarfnast aðstoðar í tengslum við umsókn þína er jafnframt hægt að hafa samband í síma 515-4800, senda fyrirspurn á netfangið: [email protected] eða heimsækja eina af þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar og við munum aðstoða þig með ánægju.